laugardagur, júní 16, 2007

Tvífarar vikunnar

Jæja, þá er líklegast komið að seinasta tvífara vikunnar í bili. Nú er flestum deildum lokið og fotboltaáhorf þar af leiðandi, dottið niður allsvakalega. Ég nærist samt á sögusögnum um hverjir ætla að kaupa hverja, og eftir að hafa séð myndina af Carlos Tevez hjá West Ham, þá get ég ekki annað en parað hann við hinn vinsæla Shrek. Ég er ekki frá því að þeir líkjast meira en hinn tvífari Shrek´s, hann Wayne Rooney. Hvað segið þið um það?





Svo af því þetta er nú væntanlega seinasti pósturinn um þetta efni, er kannski ekki úr vegi að bregða aðeins útaf vananum og bera saman tvo þekkta fótboltamenn (en ekki einn frægan og einn úr boltanum).

Þessir hafa báðir gert garðinn frægann gegnum tíðina og hefur þeim oft verið líkt saman, jafnt innan vallar sem utan. Þetta eru auðvitað engir aðrir en sá kunni fótboltaknappi: Leifur Franzson úr Lunch United og sonur hans Gunnar Páll Leifsson úr If Guðrúnu (reyndar er útlit fyrir að samningar milli Fc Fame og Guðrúnar séu að ganga í gegn, og því mun Gunnar spila fyrir þá síðarnefndu, núna strax í lok sumars!)
Báðir eru þeir myndarlegir með eindæmum og eru báðir þekktir fyrir hógværð sína. að auki eru þeir báðir örfættir (eða specially gifted eins og þeir kjósa að nefna það) og eru þekktir fyrir sínar 60 metra löngu glæsisendingar ;)

Efnisorð:

miðvikudagur, maí 30, 2007

Tvífarar vikunnar...

...eru að þessu sinni leikarinn Michael Berryman og Eggert Magnússon Hamrari.

Mike Berryman, hefur leikið í nokkrum hryllingsmyndunum og gæðamyndinni One flew over the cuckoo´s nest. Hann er með nokkuð sérstakt höfuðlag, sem og Eggert Magnússon, sem er oft kallaður the Eggman af bresku pressunni.







Í gestahorninu er það aftur hann Geir sem kom með tillögu, en .það var leikarinn Ben Stiller og fótboltaknappinn Craig Bellamy.





Það vill reyndar svo skemmtilega til að Bellamy, var fyrsti tvífarinn sem ég hafði sent til fótbolta.net sem þeir birtu. Ég hafði parað hann við Evert Víglundason Bootcampara(ansi öflugt nafn!), sem var leiðsögumaðurinn í skíðaferðalaginu okkar til Madonna di Campiglio hérna um árið.



Campell

Evert lengst til hægri


e.s. reyndar höfðu báðir þessir tvífarar verið birtir á fótbolta.net, en þaðp var vegna þess að ég hafði sent þá inn, og tel því að ég hafi réttinn á að birta þá aftur :)

Efnisorð:

miðvikudagur, maí 16, 2007

tvífarar vikunnar

Tvífarar dagsins eru Gary Durdan úr CSI og Kieran Richardsson úr ManU. Þeir eiga fleira sameiginlegt, því ég las e-s staðar að þeir þjást báðir af PTSD úr barnæsku. Barnapíur þeirra beggja voru ansi latar og nenntu ekki að passa þá, og sleiktu bara varirnar á þeim og klesstum þeim upvið gluggann, þar sme þeir máttu hanga tímunum saman.






Seinni tvífarar dagsins eru Norsarinn Jon Arne Riise úr Liverpool og leikarinn sterklegi Brian Thompson. Sá síðarnefndi kom sterklega til greina í hlutverk Conan í endurgerð þeirrar myndar, og efast ég ekki um að Jon gæti skilað því hlutverki vel sömuleiðis.




Efnisorð:

þriðjudagur, maí 08, 2007

Tvífarar vikunnar

Yes, þá er loksins komið aftur að liðnum tvífarar vikunnar og er af nógu af taka. Ég kem sjálfur með tvo, og í lokin er það gestahornið sívinsæla. En þar koma myndir af einstaklingum sem gestir hafa stungið uppá sem tvífara, og í þetta skiptið er það hann Geir sem ríður á vaðið.

Við byrjum á Scott Wold (hefur leikið í myndinni Go og mörgum öðrum myndum og sjónvarpsþáttum) og fótboltamanninum Saviola (varavaraskeifu Barcelona (hann er sko enginn varamaður eins og Eiður okkar, hnuss nei)).






Næstu tvífarar eru leikarinn og sjónvarpsmaðurinn þjóðkunni Felix Bergsson og Fh-ingurinn og markaskorarinn Tryggvi Guðmundsson






Í gestahorninu var það svo Geir sem paraði saman Dida, markmann AC Milan og söngkonuna Skin, úr Skunk ´n Nansie. Það leynir sér ekki að það er töluverður svipur. Skunk sýnist mér þó taka aðeins stærra uppí sig...






ef fleiri vilja ríða á vaðið, þá er bara endilega að koma með uppástungur hérna fyrir neðan.

Efnisorð:

miðvikudagur, maí 02, 2007

Tvífarar vikunnar

Það er komið að nýjum lið hérna á þessari síðu sem heitir tvífarar vikunnar, þar sem annar aðilinn mun koma úr röðum fótboltamanna og hinn...bara já, e-s staðar annars staðar frá. Eldri liðir eins og "hver á hvaða hægðir?" og "hvert er lagið?" (þar sem ég klappa stappa nipur fótunum í takt við e-ð ákveðið lag og þið eigið að geta (mjög skemmtilegur leikur (samt enn betri í eigin persónu))), eru búnir að renna sitt skeið.

Ég vill þó enn frekar þakka Fótbolti.net að vera svo duglegir að birta ekki nema brot af öllum þeim tvíförum sem ég hef sent, sem leiðir til þess að ég hef ákveðið að byrja með þennan lið á minni eigin spýtu.

Til að koma þessu af stað ætla ég að birta tvö pör af tvíförum.

Það fyrsta er:

Xabi Alonso (Liverpool leikmaður) og Doug Savant (leikari í Desperate Housewifes og Melrose Place (ekki það að ég horfi á það...;)







Hvað segiði um þessa? Er átæða fyrir að fótbolti.net er ekki búinn að birta þessa?

Ok, en hvað með þessa tvo snáða hérna: Deco (leikmaður Barcelona og Portúgald) og Haley Joel Osmond (þ.e. þegar hann var enn lítill og dætur, nú er hann nær óþekkjanlegur villingur í Hollywood)







Það er reyndar oft voða erfitt að finna góðar myndir af fótboltamönnum því í flestum liðsmyndum eru þeir grafalvarlegir, svo þessar brosmyndir úr Hollywood virðast stundum ekki eiga mikið sameiginlegt.

Efnisorð:

Standard Guestbook
Name: **
What is your email? **
Your homepage:
Where are you from?
Comments? **
This message is private
Site Feed